Reaper of Death Kertastjaki
Hefur þig ekki alltaf langað í smá extra kertastjaka, en bara ein hauskúpa eða hrafn eða ehv er bara ekki alveg nóg fyrir þinn smekk?
I PRESENT: dauðinn sjálfur skríðandi til þín upp úr fornri og satanískri bók yfir hrúgu liðinna hausa. Ef þessi stjaki hræðir þig ekki, þá gerir það ekkert. Sorry.
Height 18cm Width 12cm Depth 12.5cm
GOTH AÐ VITA:
Við sendum frítt á næsta pósthús, pakkaport, póstbox eða með Dropp þér þegar verslað er fyrir 14 þúsund eða meira.
Ef verslað er fyrir lægri upphæð er sendingargjaldið 1200 krónur með póstinum og Dropp.
Ef þú vilt skila vörunni, þarftu að passa að senda hana í búðina sjálfa en ekki á næsta pósthús. Heimilisfangið er Rokk & Rómantík, Laugavegur 62, 101 Reykjavík. Við sendum þér inneign eða aðra vöru í staðinn og þú greiðir fyrir sendinguna þegar þú sækir nýja vöru á pósthúsið
Ef pöntun berst fyrir klukkan 11:00 fer varan oftast í póst samdægurs.
Pósturinn er langoftast mjög snar í snúningum en þeir gefa sér einn til þrjá virka daga til að koma vörunni til þín. Það er ekki á okkar ábyrgð ef þeir óvart klikka á því.